Blogg...
24.12.2009
Jólakveðja....
Jæja þá er komið að þessum ágæta degi, innkaupa stressið búið, samt hefur hún Hulda mín séð svona mest um innkaupin af jólagjöfum hún er svo yndisleg kona.
Og nú býð ég bara eftir að fá að borða Hamborgarahrygg á eftir og svo ísinn, en ég reikna nú með að Ísinn verði nú ekki vinsæl hjá þeim yngsta bara að drífa sig að ganga frá og svo að opna pakkana. En svona var maður nú líka ekkert hangsa við þetta uppvask, en það var nú alltaf gengið frá öllu áður en maður fór í að rífa upp pakkana,
En ágætu gestir mínir á þessa síðu vill ég þakka fyrir að kíkja hér inná og ég þarf að fara að finna fleiri gamlar myndir, þær eru nauðsynlegar að geta sýnt þær sem gerðist fyrir slatta árum á Skagaströnd.
Gleðileg jól og hafið það sem allra best um jólin.
kv Jón og fjölskylda.
