Blogg...

29.12.2009

Fleiri lög....

Bjartsdynislei#1CD42F.mp3 = Bjartsýnisleiðir

Sixties.mp3     Hér eru 2 hressari lög, Bjartsýnisleiðir sendum við Ingimar á Rás 2 þegar Bjartsýnis lagakeppni var, en náðum ekki inn í það skiptð lag sem ég kom með til hans og hann samdi laglínu og texta. En Sixties er lag sem ég bjó til og er ósungið lag......

Kv Jón Arn...

Skrifað 29.12.2009 kl. 17:49 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

28.12.2009

Róleg lög.....

  Afslöppun.wmv    Leggjabrjótur.wmv       Engin kona.mp3

Hér eru 3 róleg lög sem ég gerði með aðstoð Ingimars, þau eru um ýmislegt, göngutúr og fl.Textin við lagið Engin kona er eftir Unni Fyrrverandi mákonu mína.

Kv. Jón Arn...

Skrifað 28.12.2009 kl. 21:23 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

27.12.2009

Rokklög...

Hér eru 3 rokklög sem ég hef verið að búa til, og  þau eru ekki með söng því að ég er ekki þessi maður sem syngur mikið. Þau eru tekin upp hjá Ingimari Odds og hann er semsagt skráður sem upptökustjóri.
Sólórokkið.wmv   Smíðarokk.wmv  NorðanRokk.wmv

Kv Jón Arn...

Skrifað 27.12.2009 kl. 21:07 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

27.12.2009

Líða að áramótum....



Nú er maður búinn að borða nóg í bili minnsta kosti pása fram að áramótum. Svo er það áramótaheitið hvað ætti það að vera, t.d. borða minna já eða hreyfa sig meira það er svo margt sem manni dettur í hug en hvort úr því verður veit nú maður ekki. Einu sinna þá ætlaði ég að fara í leikfimi og ég var alltaf að seinka því svo varð bara ekkert úr því.

Margt er það sem manni dettur í hug  þegar ég reykti þá ætlaði ég að hætta því en ekki tókst mér það nú,en samt tókst mér það nú með tímanum og það var gott að hætta því.

Svo er það áramóta peninga sprengjan, ég hef nú ekki keypt mér neitt að ráði, ég sit bara út á yfirbyggðum svölum og horfi á hálfa borgina sprengja það er bara svo mikill háfaði að maður getur ekki talað saman á svölunum ef maður hefur gluggana opna, þá er nú oft sem maður hefur áhyggjur af því að það komi ein raketta inn á svalirnar og spryngi.

maggi kaggi ekki heima 6.mp3
Hér er eitt lag sem ég var að dunda  mér að búa til demó.....

Kv Jón Arn....

Skrifað 27.12.2009 kl. 20:34 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

24.12.2009

Jólakveðja....

Jæja þá er komið að þessum ágæta degi, innkaupa stressið búið, samt hefur hún Hulda mín séð svona mest um innkaupin af jólagjöfum hún er svo yndisleg kona.

Og nú býð ég bara eftir að fá að borða Hamborgarahrygg á eftir og svo ísinn, en ég reikna nú með að Ísinn verði nú ekki vinsæl hjá þeim yngsta bara að drífa sig að ganga frá og svo að opna pakkana. En svona var maður nú líka ekkert hangsa við þetta uppvask, en það var nú alltaf gengið frá öllu áður en maður fór í að rífa upp pakkana,

En ágætu gestir mínir á þessa síðu vill ég þakka fyrir að kíkja hér inná og ég þarf að fara að finna fleiri gamlar myndir, þær eru nauðsynlegar að geta sýnt þær sem gerðist fyrir slatta árum á Skagaströnd.

Gleðileg jól og hafið það sem allra best um jólin.
kv Jón og fjölskylda.

Skrifað 24.12.2009 kl. 12:01 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.12.2009

Jólastjörnur...

Jólastjörnur1.mp3...Hér er lag sem ég samdi þegar sá yngsti Magnús Jón fæddist fyrir 7 árum.Ég sat við rúmið og var að spila á kassagítar, en samt skrítið að hann sofnaði fljótt meðan ég var að spila. Svo í fyrra þá fór ég með það til hans Ingimars og við tokum það upp og hann samdi texta og laglínuna og við sendum það til Rásar 2 í jólalagakeppni en við náðum ekki inn.

Jólastjarna lag eftir Jón og Ingimar..

kv Jón Arn...

Skrifað 15.12.2009 kl. 18:26 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

14.12.2009

Ljúft sóló...

Ljúftsólólag...Jón.mp3 Hér er lag sem ég var að semja...og er bara í demó þannig að það er bara svona hálf klárað...Ég er nú bara að leika mér að semja lög er með smá stúdeó í tölvuni ...bara að dunda mér við að fást við eitthvað, vantar að finnar mér verk fyrir hitt áhugmálið mitt að taka myndir...það vantar snjóinn....það kemur að því að ég finn eitthvað....

Kv Jón Arn....

Skrifað 14.12.2009 kl. 20:59 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.12.2009

Koffinlaust kaffi......mmmmm

Ég mæli með koffin lausa kaffi....annars sæl verið þið. Þar sem ég er að vinna þá var eigandinn að stríða okkur með kaffiblöndu og setti stundum koffinlaust eða venjulegt kaffi og ég fann ekki mun á því nema að ég fæ ekki í magann af koffinlausu eins og ég fæ af venjulegu kaffi, þannig að ég mæli með að smakka koffinlausa kaffið.....er ég búinn að skrifa þetta nafn svolítið oft,,,, hvað með það ég var að ná mér í einn bolla af kaffi og hann er númer 4 og er ekki kominn með í magann enn og stalst í að fá mér smá súkkulaðibita með því, en það er helgi svo að það er í lagi. Nú er ég alltaf að dunda mér í smá heima stúdeó og er að semja eitthvað....sem gengur nú ekki alltaf. En ég prófaði að semja sinfóníulag eða eitthvað nálagt því, hér er lagið sem ég var að prófa að búa til sinfó.mp3. Það er svolítið rólegt....og svo er fl lög á lagalistanum....

Kv Jón Arn....

Skrifað 12.12.2009 kl. 11:25 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu