Blogg...
28.5.2009
Smá brandari!!
Jónas 92 ára og Anna Júlía 89 ára búa á Grund og eru upp með sér að hafa ákveðið að gifta sig Þau fara í smá gönguferð til að ræða brúðkaupið og á leiðinni fara þau fram hjá Apóteki Austurbæjar. Jónas stingur upp á því að þau kíki þar inn, sem þau og gera.
Jónas heilsar manninum við afgreiðsluborðið og spyr hann hvort hann sé eigandinn.
Maðurinn segir svo vera.
Jónas: Við erum að fara að gifta okkur. Selurðu nokkuð hjartalyf?
Apótekari:Að sjálfsögðu
Jónas:Hvað með blóðrásarlyf?
Apótekari: Allar tegundir
Jónas: Hægðalosandi?
Apótekari: Auðvitað
Jónas: Þarmaflóruleiðréttandi?
Apótekari: allar gerðir
Jónas: Lyf gegn minnistapi, elliglöpum og Alzheimer?
Apótekari: Mesta úrvalið í bænum!
Jónas: Hvað með vítamín, svefntöflur, tannlím og lyf sem slá á Parkinsons?
Apótekari: Jú, vissulega, allt af þessu... þetta er nú apótek.
Jónas: Lyf við brjóstsviða, bakflæði, þvagleka og saurleka?
Apótekari: Jú, allt við þessu
Jónas: En hjólastóla, hækjur, stafi, göngugrindur og svoleiðis? Apótekari:
Jú, allar stærðir og kraftmestu tækin.
Jónas: Fullorðins bleyjur?
Apótekari: Jamm Jónas: Heyrðu, þá ætlum við að vera með gjafalistann okkar hjá þér...
Góður
Kv Jón Arn...

26.5.2009
Ný lög....
Búinn að bæta við nokkrum lögum, er að dunda mér við að semja lög og taka þau upp í demo....Ingimar er upptökustjóri og semur texta, en ég fæ texta líka frá henni Unni Sólm.
Kv Jón Arn...
Kv Jón Arn...
21.5.2009
Í sumar skapi....
Jæja hvað er nú að frétta af íslandi í dag, ég er nú sölumaður og er að rúnta um bæinn og heimsækja fyrirtæki og Það er nú mikið talað um hvernig ástandið er í dag, ja fólk er nú ekki jákvætt um framtíðina og náttúruleg hvað maður er að heyra í fréttum að öll þessi fyrirtæki séu að fara á hausinn. En verður maður ekki að reyna að vera jákvæður um að eitthvað breytist og verði gott. Við erum nú heppinn við hjónin að við erum bæði með vinnu og erum ekki enn komin með uppsagnarbréf
En það er komið sumar og það er spurning hvað fólk ætlar að gera, minnstakosti erum við búinn að panta skíðaskálann á Skagaströnd í eina viku og hvort við náum að vera í eina viku er nú góð spurning, því að við erum nú ekki mikið fyrir að tolla í bústað í svo lengi en það kemur í ljós, en það er alltaf gott að koma á ströndina. Ég er næstum því búinn að ákveða að klifra uppá Spákonutindinn og ath hvort að nafnið mitt sé enn þá skrifað í grasið með steinum, en það kemur í ljós......Svo erum við í tiltekt og erum aðeins að breyta hjá okkur og maður verður að vera duglegur að henda hlutum sem við vitum að við notum ekki aftur....
Svo er það fésbúk ég er nú svolítið á þeirri síðu, en mér finnst nú að fólk eigi ekki að skrifa að það sé að fara í ferðalag og ég hef verið að sjá það að fólk er að skrifa hvenær það fer og hvenær það kemur heim aftur, maður veit ekki hverjir eru að lesa þetta hjá manni nákvæmlega því að vinir vinna manna geta lesið hjá manni, eða þið skiljið.... og hvað veit maður hvort að einhverjir séu að leita eftir því að það sé eingin heima og brjótast inn á meðan....hvað veit maður eins og ástandið er í dag.
Kv Jón Arn... Þessi mynd er tekin upp á höfða...