Blogg...

19.4.2009

Minn tónlistarferill.....

Þegar ég byrjaði að hafa áhuga á að spila á hljóðfæri og vera í hljómsveit var 1985 ca. Og fór í prufutíma í hljómsveit hjá Ægi og Viggó, og byrjaði að reyna að syngja en það var ekki að ganga þannig að næsta skref var að prófa að spila á trommur, og viti menn, nei ég var ekki að slá taktinn rétt og ég fékk nokkrar tilraunir en það var ekki að ganga þannig að það var ákveðið að ráði mig ekki í grúppuna. Þannig að ég ákvað bara að fara að læra á gítar hjá henni Steinunni Berndsen. Það gekk betur og ég lærði gripin hjá henni og gerði nú tilraun að læra á nótur en ég hafði ekki þolinmæði fyrir það. OG viti menn ég var ráðin í hljómsveitina hjá Ægi og Viggó á gítar það var mikið lagt á sig að komast í band með þessum drengjum. En svo flutti hann Ægir í bæinn og þá vorum við trommara lausir vorum búnir að fá Ingimar sem söngvara og fórum að spjalla við hann Kristján Blöndal og við stofnuðum Rocky og fórum í músíktilraunir sem gekk ekki urðum 6 sæti svo bætist Fannar við og þá var hún skírð JóJó og við unnum músíktilraunir 1988.

Kv Jón Arn....

Skrifað 19.4.2009 kl. 13:53 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.4.2009

Gleðilega páska.

Kv Jón og fl.

Skrifað 12.4.2009 kl. 9:16 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

11.4.2009

Sumarið að koma...

Sæll veri fólkið....Nú situr maður með kaffið og er að spá hvað maður á að gera í dag. Jú það er nú ferming hjá okkur annan í páskum þá fermum við stelpuna okkar Helenu ýr og það á eftir að klára að gera eitthvað. Við verðum með ferminguna (ætlaði að skrifa brúðkaupið) í Grafarvogskirkju eins og þegar við fermdum hann Róbert Inga en nú erum við á hæðinni fyrir neðan, það varð nefnilega smá mistök í pöntum (ekki okkur að kenna).

Er fólk búið að ákveða hvað á að gera í sumar? Verður nokkuð farið til útlanda? Nú er það bara Ísland það er nóg að skoða, minnsta kosta er nóg fyrir okkur Huldu að skoða, því að við erum ekki miklir ferðalangar og höfum ekki farið mikið.

Nú er strákur okkar að læra á bíl og ég tók það að mér að sjá um foreldrar kennslu til að byrja með og það gengur nú bara vel hann er nú svolítið stressaður að keyra og vill ekki fara þar sem er mikil umferð. En við lentum nú í því að stoppa á rauðu ljósi eins og það er nú hér í Reykjarvíkur og hann var fyrstur í röðinni, svo kom grænt og hann drap á bílnum og aftur og aftur, hann fór náttúrulega í panik, svo kom rautt, svo næsta græna ljós var bara ekkert mál bara rúllaði áfram. Enn best að fara gera sig klára fyrir ferminguna... 

Kv Jón Arn....






          

Skrifað 11.4.2009 kl. 10:39 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu