Blogg...
17.1.2009
Skaggapartý laugard. 21 mars í Húnabúð.
Laugardaginn 21 mars verður Skaggapartý í Húnabúð skeifunni 11 í henni R.vík. Húsið opnar kl 22:00 og er til 02:30 ca. og það verður lokaður bar, sem þýðir að það verður Fellsborgarstemming og hver kemur með sinn drykk. Fram koma hljómsveitirnar Janus og Jójó. Það kostar 1500 kr inn en ekki er tekið við kortum.
Aldurstakmörk 18 ára og eldri.
Kv Skaggapartýnefnd. Jón og Hulda.
14.1.2009
Hvað er í matinn???
Sæl verið þið. Hvernig væri nú að við búum til matarhugmyndardálk, að koma með hugmyndir um auðveldan og góðan kvöldmat. Það kemur nefnilega oft fyrir að maður veit ekki hvað maður á vera með í matinn hvern dag, stundum veit maður bara ekki hvað á að gera svo öll verði ágnægð á heimilinu. Á hverjum deigi er spurt hvað er í matinn, og hvað kemur svo" ojbara, ein stundum kemur" aftur þetta er ný búið að vera. Einu sinn fengu allir á heimilinu blað og áttu að búa til matardagsskrá fyrir heila viku, og það var farið eftir hverju blaði, og þarna reddaðist hver vika, og maður þurfti ekki að hugsa, en það var skilda að hafa fisk minnstakosti einu sinni í viku.
Kv. Jón Arn
6.1.2009
Danspíur Höfðaskóla

Hérna sjáið þið danspíur Höfðaskóla, þetta er tekið 1985-6 ca.
2.1.2009
Skemmtun í Fellsborg.
jas

Hér sjáið þið kraftmikla hljómsveit frá Skagaströnd, Viggó bassi, Ægir trommuleikari og Jón gítarleikarinn, man nú ekki hvað hljómsveitinn hét en 4 you, er eitthvað sem Ægi rámar í og gestasöngkonan var einginn önnur en Jóney Hrönn. En sambandi við nafnið á hljómsveitinni, það tók stundum alla æfinguna að reyna að finna nafn á hana. Það kom nú fyrir að við spiluðum á diskóteki í skólanum og það varð náttúrulega allt vitlaust. En hún dóttir mín var að dást af frakkanum sem ég er í þarna, ekki man ég nú hvar ég fékk hann.
Svo var önnur hljómsveit að spila þarna líka, og hér er mynd að þeim.

Þarna eru þeir komnir á svið. Og þetta eru Ingimar söngvari, Guðmundur söngvari, Bjössi Þorvaldar á gítar, Hans Birgir á trommur og Arnar bróðir á bassa, en sá sem situr þarna við borðið með hljómborðið er ég nú ekki viss hver er mig rámar að hann heitir Hrafnkell Daníelsson eða Keli eins og hann var kallaður. Eitthvað var nú tæknin að stríða þeim svo að þeir gátu ekki spilað og þeir urðu að fara af sviði. Þannig að við slógum í gegn.
Þetta var einhvern tíman 1986 um haustið, því að mig minnir að ég hafi verið búinn í skólanum.
Kv Jón Arn... P.S....Hver er þessi töffari í appelsínagula jakkanum með ljósa lokka???
Og hvaða stúlka er það sem stendur fyrir framan Ægi???

