Blogg...
29.6.2008
Að reyna að vera brún.
Sæl verið þið. Það sem maður er oft að reyna að gera er að verða brún, en það er svo leiðinlegt að liggja og reyna að vera það, manni verðu heitt nennir ekki að sitja. Gott dæmi með það, þegar við fórum til Kanarí í fyrra þá var nú gott veður og þegar það voru 2 dagar eftir fórum ég og Magnús í sund og ég lenti í að tala við einn íslending og viti menn á þessum 20 mín meðan ég sat og talaði við þennan ágæta mann. Þá brann ég svo mikið að ég var að drepast gat varla legið í rúminu. Enn nú getur maður borið á sig krem og þá verður maður brún eða farið og látið úða sig allan.
Ég prófaði að bera á mig í fyrra, með kremi sem Hulda keypti,eða ég minnstakost seigi að hún hafi keypt það..... ok.. ég reyndi að bera á mig og gera það vel, en svo þegar ég fór í vinnuna daginn eftir og það bara í bol og vera brún töffari þá tók ég eftir því að ég gerði þetta nú ekki vel eða skelfileg, því að ég var sko...hvitur á svolítið áberandi stöðum, en það sagði mér það eingin, eða kannski vildi eingin seigja mér það, svo að ég var fljótur að fara í peysu. Þannig að maður verðu að gera þetta vel og vandlega eða bara vera með sina hvítu fallegu íslensku húð.
Kv Jón
27.6.2008
Er að spá......
Sælt verið þið ágæta fólk. Það sem ég er nú oft að spá hvort einhver hafi tekið upp þegar sú ágæta hljómsveit Jójó var upp á sitt besta og komu fram í einhverjum tónlistarþætti á rúv fyrir ca.18 árum og það voru tekin upp 2 lög og þau sýnd. Er einhver sem veit um einhvern sem á þetta? Þetta var tekið upp á spólu heim hjá mér á Skagaströnd, en það er týnt. Ég er búin að tala við þá hjá rúv en þeir finna þetta ekki. Maður hélt að allt væri geymt rúv, en ekki gleymt hjá þeim. )-: Hvað með það, bara ef þið finnið þetta þá væri gott að fá spóluna lánaða og ég set á DVD disk.
Góðar stundir: Jón Arnarsson
26.6.2008
Er ekkert að marka auglýsingar????
Sælir lesendur. Það sem ég er oft að spá í hvað það hlýtur að vera gott að vera kona, þær eru nú yndislegar en það er ekkert smá hvað þeim líður vel, ja minnsta kosta þegar maður er að horfa á auglýsingar þá sést það hvað þeim líður vel að vera á túr, eða hvað??
Minnsta kosti geta þær hlaupið og stokkið og gera hvað sem er brosið og aldrei að sjá að þær séu með túrverki hann er kannski bull þessi túrverkur. Kannski að þær séu ekki að kaupa réttu bindin eða snúa öfugt eða ekki með vængi, maður veit ekki. Eða kannski er það okkur körlunum að kenna þegar við förum út í búð og eigum að kaupa dömubindi og við verðum að kaupa þau sem við sáum auglýst í sjónvarpinu þar sem þær eru að hlaupa stökkva og brosa og allt annað líf að vera með réttu dömubindin.
Eða hvað??
Kv Jón Arn....
23.6.2008
Endurkoma hljómsveitarinnar Jójó frá Skagaströnd
Sælt verið fólkið. Nú vorum við í hljómsveitinni Jójó að koma saman og spiluðum í afmæli hjá Víkingi Viggóssyni öðru nafni Viddi Viggós. Hann var 50 ára og hann og frúin þau giftu sig líka.
En nú erum við án hans Kristjáns Blöndal,en hann getur ekki tekið þátt í þessu með okkur í hljómsveitinni. Við tókum eitt æfingarkvöld og það var eins og við höfðum spila saman fyrir viku. Þið getið séð það hér á síðunni þegar við spiluðum á afmælinu ég varð nú að taka það upp. Það gekk bara vel hjá okkur og það sem er næst á dagskrá er að við spilum á Kántríhátíðinni sem verður 15-17 ágúst ásamt Janus, það verðu nokkur lög sem við spilum vona bara að það verði mikið fjör.
Kv Jón
13.6.2008
Smá pælíngar!!!
Sæl verið þið. Ég er oft að spá hvað maður á að gera ef manni leiðist heima hjá sér og hefur ekkert að gera, eða manni finnst að það sé ekkert að gera á heimilinu. En ef maður horfir í kringum sig þá getur maður fundið eitthvað að gera, en það er bara að nenna að gera það sem maður sér að hægt sé að gera. T.d segir maður oft æi geri þetta á morgun, og á morgun, æi geri þetta á eftir, svo á eftir, æi ég geri þetta á morgun það tekur ekki að byrja á þessu.
Það er ótrúlegt hvað maður stundum horfir á hlutina sem þarf að laga eða breyta og bíður eftir því að þessir hlutir bara lagi sig sjálfir eða færi sig sjálfir. En það vill nú oft vera með okkur smiðina að við bara nennum ekki að gera neitt heima hjá okkur sem heitir að vera smíðaverkefni, það er alveg nóg að gera svoleiðis í vinnu en ekki heima.
Svo ef það er hringt í mann og beðin að gera eitthvað heim hjá öðrum, eitthvert smíðaverkefni þá er það ekkert mál, það er bara eitthvað við það sem maður er að vinna við það nennir maður ekki að gera heima hjá sér.
Ég hef nú séð það heima hjá smiðum að það eru smíðaverkefni sem bíður þeirra, en það kemst bara ekki í gang, og eiginkonurnar ornar pirraðar,?af hverju gerir þú þetta ekki, ég nenni ekki að hafa þetta svona? eða eitthvað í þá áttina. þetta er bara svona með okkur, en svo er nú bara líka hægt að byrja á því sem þarf að gera, þá verða elsku konurnar okkar ánægðar með karlana sína og við ánægðir með okkur að hafa byrjað á að færa skápinn eða mála herbergið eða bara það sem þarf að gera.
Svona er þetta bara, það er kannski aldurinn sem gerir mann latan heimafyrir. Þegar ég var svona 10 árum yngri þá gerði ég það sem þurfti að gera, en svo fór það að breytast eftir að ég eldist, ég er nú ekki að segja að ég sé orð eitthvað hundgamall, ekki orðin fertugur, "en samt," eins og börnin segja þegar maður er að neita þeim eitthvað að gera. Maður er nú að eldast það gerist á hverri sekúndu, það má segja að ég hef elst um 15 mín. síðan að ég byrjaði að skrifa þetta. Jæja nú fer að koma háttatími á mig kl er að verða 11 og ég er byrjaður að geispa, eins og gerist næstum því á hverju kvöldi sofna ég fyrir framan sjónvarpið og Hulda gefst upp á að reina að vekja mig.
Nú er ég hættur áður en ég sofna við tölvuna. Bið að heilsa í bili og góða nótt sofið rótt í alla nótt....
Kv Jón
11.6.2008
Höfðaskólapartíið.
Er ekki allt gott að frétta gaman að prenta nafnið sitt, eða hvað......
Nú er komið gott verður, en það er verst að maður er meiri partinn inni í bíl og manni verðu svolítið heitt og ef maður er með gluggan opin þá ruglast hárgreiðslan, og það er ekki gott mál.
Kv HJH... Hulda, Jón, Hanna.
7.6.2008
Lagasmíði..
Hér er lag sem ég hef verið að semja. Er ekki komin með nafn á það. Fór og heimsótti hann Fannar Viggós og hann tók það upp. Hann spilar undir á bassa og þverflautu.
Þið smellið á lagið og Download.
Kv Jón Arn...
4.6.2008
Ball í Fellsborg!!!!!
2.6.2008
BRJÁLAÐ STUÐ Á STRÖNDINNI !!!!!!
Jæja nú er helgin liðin og það var æðislega gaman að hitta alla þá sem gátu komið. Það er langt síðan að maður hitti marka af þessum krökkum. Dagurinn byrjaði vel, gott veður og gaman að taka þátt í skemmtiatriðum á bryggjunni og fá sér góðar kökur í félagsheimilinu. Svo að fara niður í skóla það var alveg snilld, það var alveg eins og maður hafi verið í kennslustund deginum áður og Maggi Jóns mundi allt sem við vorum að gera þegar við vorum í minni kantinum. Svo kom að því að sína sig í fótboltakunnáttu með smá fyrir augunum, það gekk sæmileg og það voru spilaðir 6 leikir og það var skorað 1 mark og það voru 71 árgangurinn sem skoraði það mark, og það var Man. United. töffarinn hann Viggó sem skoraði það eina mark sem kom.
Svo kom smá pása og var farið í bað og skipt um nærbuxur, og byrjað að drekka smá að bjór og fl. svo rúmlega kl 7 þá fóru menn að mæta og kveikja undir í grillinu og skella kjötinu á. Síðan var settur diskur á og ekki með slæmum lögum, bara síðan við vorum 15 og uppúr gat ekki verið betra og allt í botn. Og það var nú fyndin brandarin hjá honum Guðbrandi hann sagði að við þyrftum að lækka svo við vekjum ekki svefntöflurnar því að apótekið var á hæðinni fyrir neðan, en svona er þetta bara gaman gaman...
Svo var spilað á gítar ég, Hansi og Hjörtur hennar Betu, og við sungum nokkur ágæt lög,
Svo var drifið sig á ball og það var æðislega gaman eins og allt hitt. Við gerum þetta aftur eftir 5 ár????...Hanna þú stóðs þig vel í öllu fyrir norðan og bara þakka þér kærlega fyrir.
Ég vona bara að allir hafi skemmt sér vel.
Kv Hulda og Jón.
2.6.2008
Spurning dagsins????
Einu sinni var gerð bíómynd á Skagaströnd þegar hann Jónas Baldursson var kennari í Höfðaskóla. Þetta var spennumynd og krakkarni í höfðaskóla léku í henni ásamt tveimur eldri mönnum sem eru látnir.
Spurningin er.
Hverjir voru þessir eldri menn?


