Blogg...

28.3.2008

Upprifjun fyrir bekkjarpartýið!!!!!!!!




Nú er bekkjarpartý framundan og maður verður að rifja upp hvernig maður var fyrir ca. 23 árum. Tíminn líður á gervihnattaröld og það gaman að fara að hitta þá sem maður hefur ekki séð síðan bara ég veit ekki hvenær. Ég man hvenær ég hitt Rafn Inga síðast, það var 1989 þegar Hulda var í menntaskólanum á Akureyri og ég var að heimsækja hana eina helgina, þá vorum við að labba um kvöldið og vorum á leiðinni upp á heimavist þegar ég hitta hann, og viti menn hvað haldið þið að hann hafi gert? jú hann henti snjóbolta beint í augað á mér.  Og Hjalta Magg sem ég var að tala við í dag og segja honum frá partýinu ég hef ekki séð hann síðan við vorum að vinna hjá Helga Gunnars 1989 ca. Eða ég man ekki eftir öðrum tíma. Rakel man ekki hvenær ég sá hana síðast. Það er hægt að telja endalaust hvern maður hefur ekki séð lengi. Svo er maður stundum að rifja upp hjá hverjum maður sat og það var nú alltaf eins, Ég, Óli,Eiríkur og Jóhann við sátum hlið við hlið, Kata og Jóney, svo má leiiiinnngi telja og reyna að muna.....

En það væri gaman ef þið skrifið eitthvað sem þið munið úr skólanum skemmtilegt og prakkaralegt. Verið ófeiminn þið þurfið ekki að skrifa nafnið............ Það er nóg af myndum að skoða og rifja upp hvað gerðist fyrir öllum þessum árum........

Kv Jón og Hulda

Skrifað 28.3.2008 kl. 20:21 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

24.3.2008

Bekkjapartý á sjómannadaginn 2008 á Skagaströnd.

Ágætu árgangar 69, 70 og 71. Nú er verið að spá í að halda bekkjapartý á Skagaströnd  sjómanndaginn 31. maí  2008. Og þessir 3 bekkir munu hittast og gera eitthvað skemmtilegt. Best er að byrja daginn og fá að hittast í grunnskólanum eftir útiskemmtunina og kíkja í stofurnar sem maður var í og rifja upp það sem maður gerði á sínum yngri árum . Svo eftir það að fara og fá sér að borða. Ég og Hulda erum með skíðaskálann á leigu svo að það væri fínt að hver komi með eitthvað að borða fyrir sig og maka og grilli það, pappadiska og hnífapör, og höfum þetta auðvelt og skemmtilegt... 

Það væri gott ef þið sendið  mail eða símanr. Svo að við getum verið í sambandi og fengið að vita hverjir geta mætt eða ekki mætt. Sjómanndagurinn er vinsæll tími fyrir bekkjapartý,
það er þegar annar bekkur sem ætlar að hittast, ekki verra ef það eru fleiri.....Endilega þeir sem lesið þetta, að koma því til þessara bekkjarnemenda sem þið vitið símanr. eða mail hjá..
það væri ágætt að 71 tali við Jóhönnu Sig... joogei@simnet.is
                                 70 tali við Jón Arn... jonar@internet.is
                                 69 tali við Huldu Magg... huldamagg@isl.is

Skrifað 24.3.2008 kl. 17:18 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

21.3.2008

Hel.... hann Bjarni Ottós!!!!!!!8-)

Ég verð að segja frá einu sem hel..... hann Bjarni Ottós gerði við mig einu sinni. Ég var oft að leika við Erling  þegar ég var á yngri árum, og það kom fyrir að við vorum að gera eitthvað svo við urðum þyrstir. Og eitt skiptið þá varð ég rosalega þyrstur og ég fór inn og bað Bjarna að gefa mér að drekka, það var nú bara sjálfsagt, hann var svo blíður, en það tók smá tíma, ég heyrði hann vera að hræra, og ég spurði hann hvað hann væri að gera og hann var fljótur að svara því "ég er að fá mér kaffi með sykri ég er alveg að koma" ég man þetta svo vel. Svo kom hann með djús fyrir mig og ég tók stóran sopa, og viti menn, hvað haldið þið að hann hafi verið að setja í glasið? Jú salt og ég kyngdi því og það var ekki til að bæta þorstann, en hann var með annað glas sem hann lét mig fá og ég gleypti næstum allt glasið.
 En Bjarni hann er nú fínn karl og ég held að ég hafi fyrirgefið honum þetta fljótt. En ég hitti hann nú ekki alls fyrir löngu og sagði honum þetta, en hann mundi nú ekki eftir þessu. Það er aldrei að vita að ég bjóði honum í glas og........

Kv. Jón Arn.....

Ps. Ég vona að Bjarni fari ekki í mál við mig að ég hafi sagt þessa sögu.

Skrifað 21.3.2008 kl. 10:13 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.3.2008

Eagles Tónleikar, með Íslenskum snillum

Þetta voru geggjaðir tónleikar hver snillinn á fætur öðrum var á sviðinu, öll bestu löginn voru tekin og góðir söngvarar. Og síðast tóku þeir hotel California og það var eins og Eagles væru á sviðinu. 

http://www.youtube.com/watch?v=JAFdmbKTEsU&feature=related


Skrifað 19.3.2008 kl. 23:19 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.3.2008

Þorskastríðið!!!!!!!!


Það var mikið um að vera þegar þorskastríðið var. Þessar myndir eru teknar um borð í varðskipinu Ægi. Þar var pabbi að vinna og hann upplifði það þegar breska herskipið sigldi í hliðina og eins og það sést á myndinni þá hefur komið svolítið högg á síðuna. Það eru fleiri myndir sem hægt er að sjá á síðunni minni um hasarinn á sjónum......

Kv Jón Arn......

Skrifað 19.3.2008 kl. 8:25 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.3.2008

Bogasnillingar á áttundaáratuginum !!!!!!!!



Það var mikið fjör þegar bogatískan var. Það var mikið keppt um hver var með kraft mesta bogann. Mig minnir nú að Bjössi hafi alltaf verið með besta bogann, hann gat skotið hæðst. Svo hvern nýársdag þá var gengið um og tínt til prik til að nota sem örvar. Það voru settir naglar á örvarnar og reynt að hitta í mark. En rörin í bogana gat maður fengið hjá Bjössa, hann reddaði þeim hjá pabba sínum, svona rest sem var afgangs. Á fyrst myndinni er Arnar og Bjössi H og á hinni er ég (Jón) og Bjössi H algjörir töffarar...... 
                           
Kv Jón Arn...l)

Skrifað 18.3.2008 kl. 15:09 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.3.2008

Þegar Hólaneskirkja var 60 ára.


Mynd 1. Þau fermdust þegar kirkjan var vígð árið 1928. Myndin er tekin á 60 ára afmæli kirkjunnar. Á myndinni eru Guðmann Magnússon Vindhæli, Henný Berndsen frá Litla-Bergi (var búsett í Búðardal), Sigríður Ásgeirsdóttir Lækjarbakka og Guðmunda Pétursdóttir frá Lækjarbakka (var búsett á Akureyri).
Mynd 2. Fermingarbræður frá 1932, Þórbjörn Jónsson Flankastöðum, Jóhann Pétursson Lækjarbakka, Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum, Skafti Jakobsson hann var búsettur í Noregi (hann var bróðir Jóhanns og Ágústs Jakobssona í Blálandi. Fremstur er Snorri Gíslason Höfðatúni. Á myndina vantar einu stúlkuna sem fermdist með þeim, Lísu Berndsen frá Litla-Bergi.
Mynd 3. Á þessari mynd eru Jóhann Pétursson, Lísa Berndsen og Snorri Gíslason.
Myndin er tekin á 60 ára afmæli Hólaneskirkju.

Skrifað 17.3.2008 kl. 18:41 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

16.3.2008

BlogStuff : ThisRecordIsLocked : is

Skoða nánar

16.3.2008

Unimog sem afi átti


Þessi gamli Unimog árgerð 1955 sem afi átti er enn til, það komu aðeins 5 eða 6 bílar til landsins í fyrstu sendingu, en þeim fjölguði með tímanum, það væri gaman að vita hvað margir af þessum bílum séu gangfærir  eða bara til. Svavar Jónsson frá Öxl keypti af honum bílinn 1963.. Mamma og afi skruppu þangað 1997 og skoðuðu þennan glæsilega bíl, á hægri myndinni sést glæsivagninn ásamt Huyndi 1995 og það er smá munur á þessum vögnum, Unimog kæmist nú yfir Hynadinn. Afi fór margar ferðir inná Blönduós til að ná í lækna ef þess þyrfti og ná í meðöl og matvörur. það var bara hægt að sturta til hliðanna ekki aftur á bak. Það var stundum eins og hann keyrði hratt því bílinn var svo stuttur. Hann notaði hann við að slá túnin, það var svo margt hægt að nota hann við. Hann komst hálfa leið uppá fjall á þessu farartæki. Það eru bara tvö sæti í honum, það kom fyrir að hann fór að ná í mömmu á Kvennaskólann á Blönduósi og það var einhver sem vantaði far svo að hann þurfti að sitja með mömmu við hliðinna á meðan hann keyrði (ekki segja frá þessu). Það væri gaman að vit hvort hann er ökufær og með skoðun.

Kv Jón Arn....

Skrifað 16.3.2008 kl. 8:48 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.3.2008

Lundur á Skagasrönd


Mamma fæddist í Lundi 1943. Afi og amma leigðu á annari hæð til vinstri og bjuggu þar meðan var verið að byggja Lækjarbakka. Ole Omundsen og Margrét áttu Lund og þau bjuggu líka á annari hæð en hinu meginn. Á fyrstu mynd er  langamma mín Marta og mammu og  Guðmundur Jón Bjarni Finnsson, hann er sonur Mundu systur hans afa . Í Lundi var seinna Pósthús og símstöð. Ólafur Lárusson var Póst og símstöðvarstjóri, þegar hann dó tók Björg við. Neðri myndin er af Margréti Jóhannesdóttir, Sigurlaug Friðgeirsdóttir og Ola Amundsen.. Hesturinn gamli Rauður eins og hann var kallaður, hann hrærði alla steypuna. Það var hugmynd Hilmars Árnasonar bónda á Hofi. Hann var látinn labba hring og hræra þannig í tunnunni. Á á mið myndinni  er mamma sitjandi á Rauði og afa stendur þar við hlið. Á neðri myndinni til hægri er langafi hann Pétur, og er við störf við byggingu á Lækjarbakka. Börnin sem standa þarna eru Ráða á Jaðri og þau litlu eru frá vinstri Ása, Siggi á Jaðri, Guðmundur J B Finnsson og á endanum er það fyrrum fréttamðurinn á rúv Helgi H Jónsson.


Skrifað 15.3.2008 kl. 17:29 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.3.2008

Sálar tónleikar, snilld...

                                      
Þetta voru frábærir tónleikar troðfullt hús og góð lög. Fullt af sætum stelpum, og sætum strákum segir Hulda. En það var gaman, ég og Hulda erum orðin gömul við vorum þreytt, og gott að fara heim.

 kv Jón Arn...

Skrifað 15.3.2008 kl. 1:01 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

14.3.2008

Nú erum við að fara á Sálina í kvöld!!!!!


Nú erum við að undirbúá okkur fyrir Sálar tónleika Hulda komin með hvít í glas og í brjáluðu stuði, þetta verður svaka gaman........

Sálarkveðja Jón Arn...
http://www.tonlist.is/Music/ViewTracks.aspx?AuthorID=2700#0

Skrifað 14.3.2008 kl. 19:27 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

14.3.2008

SCORPIONS!!!!

BlackoutHvernig væri að fá þá til Íslands, það væri ekki slæmt.
Hér er eitt af bestu lögunum þeirra, mitt uppáhalds lag.
http://www.youtube.com/v/3uNyPefjS88&hl=en
Og hér koma fleiri.......
http://www.youtube.com/watch?v=eI6aDJ5ZTjY&feature=related
httphttp://www.youtube.com/watch?v=_If_4UwgepQ://www.youtube.com/watch?v=YouTube - Broadcast Yourself.
2UqCkFTtOOs&feature=related

Skrifað 14.3.2008 kl. 18:02 af Jón Arn...

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.3.2008

Skólaferðin 1986, mikið mikið meira fjör!!!!

1986 í því skólaferðalagi þá var minn bekkur elstur og þá var farið eitthvert ég man ekki hvert það var. En minnsta kosti gistum við eina nótt í Munaðarnesi í 3 bústöðum. Og þá voru Ingibergur, Inga leikfimiskennari og hennar maður sem komu með okkur, og mig minnir að hann hafi komi með djús með sér, eða eitthvað svoleiðis. Það var vel raða í bústaðina um 15 manns í hverjum bústað ef ekki fleiri. Það var ýmisleg gert á þessum tíma. Það var eins og að vera með sogblett hafi verið í tísku strákarni voru að súa hvor annan og þeir reyndu að merkja mig en þeim tókust það ekki. Það er svo langt síðan að maður man ekkert hvert maður fór, man einn og einn stað, hvort við fórum ekki á strandirnar, ég man ekki. Það var svo vel raða í hvern bústað að það var alveg þétt leigið. Nú er kominn háttatími og ég bíð góða nótt.

Kv Jón Arn...

Skrifað 13.3.2008 kl. 23:09 af Jón Ar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.3.2008

Myndavinna!!

Nú  í þessum skrifuðu orðum er ég að setja inn myndir síða frá tíma 1986 og einna verslunarmannhelgar!! þær koma innan klukkutíma eða svo........
kv Jón Arn...

Skrifað 13.3.2008 kl. 20:05 af Jón Ar

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.3.2008

Skólaferðin 1985, mikið meira fjör!!!!

Skoða nánar

12.3.2008

Skólaferðin 1984, mikið fjör!!!!

Skoða nánar

11.3.2008

???????

Skoða nánar

11.3.2008

Ball með hljómsveitinni Janus

Skoða nánar

8.3.2008

Sund og bingó hóhó.......!!!

Skoða nánar

6.3.2008

Snildar tiltektar hugmynd!!!

Skoða nánar

5.3.2008

JANUS !!!!!!

Skoða nánar

2.3.2008

Ein tönn að lostna :-)

Skoða nánar

1.3.2008

Að klóra sér í punginn er sekt!!!!!!!!

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu