Blogg...
28.2.2008
Fiskisögur........endalausar......!!!!!!
Jæja hvernig finnst ykkur að rifja þetta allt saman upp?? Það er margt sem rifjast upp fyrir manni að skoða allt þetta gamla fólk, eins og manni fannst það vera, það voru allir eldri en 25 hund gamlir. Mér fannst hann Maggi og Gunni Stef voru voða gamlir karlar og Rúnar vera afi manns hann var með pípu og það voru bara afar með pípur. Maður var nú bara 17 ár þegar maður komst á næst hæsta tind frystihússins það var að komast í tækin með gömlu körlunum. Við Ingvi Sveinn vorum mikið saman í tækjunum og líka utan vinnustundar. Ég hef nú ekki séð hann í mörg á. En ég á eftir að setja eina syrpu í viðbót og það er af árshátíð sem var haldin 11 mars 89 og það með Sálinni ekkert minna og það var mikið fjör mikið grín...... Það er nú gaman að sjá þessa gömlu karla Sigga á Hólanesi, Benna og konurnar Önnu Aspar og Jóhönnu hans Snorra og alla hina. Og svo náttúrulega líka millialdurinn sem var kannski á fertugsaldri.
Það vantaði nú ekki að Halli verkstjóri hann var nú alltaf hress karl og hann var nú ekki mikið að skamma okkur yngri krakkana maður reyndi nú að vera duglegur í vinnu. Ég man en hvað númer ég var með til að stimpla mig inn, það var 51, ég er nokkuð öruggur með það. Nú er best að fara koma þeim litla í rúmið, það er nú komin tími að hann fari í bælið. Hann er svo spenntur yfir því að það er að lostna hjá honum tönn og hann er að reyna að borða epli en það kemur ekki.
Kv Jón Ar....
27.2.2008
Myndir Frá Hólanesi hf
Nú er ég búinn að fá myndir frá þeim Gunnu Páls og Siggu Gests frá tíma frystihússins. Það verður gaman að rifja upp þann tíma sem mikið var að gera á Skagaströnd. Endilega skrifið eitthvað skemmtileg sem þið munið eftir við myndirnar svo maður geti rifjað upp gömlu dagana. Verið ófeiminn að skrifa og ef einhver á myndir þá get ég tekið þær og sett inn á síðuna. Það er nauðsinnilegt að rifja þennan tíma upp sem allt var brjálað að gera á þessum ljúfa kaupstað.
Kv Jón Ar.....
26.2.2008
Mér HUNDLEIÐIST !!!!!!!!
Rosalega er leiðinlegt að vera veikur heima. Ég finn mér ekkert að gera það þarf ekkert að gera hérna heima ekki að þrífa ekki að mála, er of veikur til að gera það,( að mála) , er með, hringir síminn, og það vinnusíminn, þetta var stutt, svo ég haldi áfram, ég er með svo mikla hellu að það væri hægt að kalla það hvolsvöll það syngur í eyranu.
Hvað er það meira, jú ég ákvað að leggja mig að því mér leiddist svo en það tók smá tíma að sofna , en þá fór ég að dreyma bull og vitleysu.
Ég fæ hausverk á að hanga svona inni bara ef ég nennti að lesa bók, en núna þurfti ég að finna pening handa Helenu í strætó hún er að fara í fimmleika rosalega dugleg.
Ég vona að ég geti farið í vinnuna á morgunn, ég þarf að fara með einum sölumanni og hitta viðskiptavini sem ég á að taka við af hjá honum. Svo var að brotna úr einni framtönn, ég þarf nefnilega að sofa með plastgóm af því að ég gnísti svo tönnum á nóttinni að tannlæknirinn bjó til smá góm sem eru á framtönnunum og hann er búinn að brjóta 2 sinnum úr framtönninni, en nú er ég búinn að fara að hitti sérfræðing og hann er búinn að búa til stórann góm og hann kostar 100 þús. að fara til hans og láta hann búa til einn góm, takk fyrir, Svo er það þorrablót á föstudaginn, það er 3 blótið sem ég og Hulda förum á. Jæja nú er ég hættu og kominn í ró..... og kveðið svo 
Kv. Jón Ar....
25.2.2008
Konudagurinn!!! úps :-/
Jæja það gat nú verið að maður gleymdi konudeginum þó svo að ég skrifaði það á dagatalið, Hulda gaf mér nú hinnt um það í hádeigið að ég væri að gleyma eitthverju, bíddu nú við hvað gat það nú verið í þetta sinn, jú auðvitað konudagurinn, "dúllan mín ég er með allt á hreinu dagurinn er nú ekki búinn" en á maður kannski að vera búinn að kaupa það áður en hún vaknar. En hún fór nú uppí rúm seinnipart dags og fór að lesa, svo er hún líka pínu lasin svo að ég var nú svo heppinn að hún sofnaði og þá skrapp ég í Krónuna og ég þurfti að versla inn á heimilið og kaupa einn blómvönd, en það var nú þannig að ég gleymdi að kaupa hann í Krónunni og mundi eftir því þegar ég búinn að setja í poka og var að gang út, djöf.... hvað nú ég ætlaði að snúa víð þá hitti ég kunningja minn hann Dóra og hann var að spyrja mig hvað hann ætti að gefa konunni að borða, að borða og ég ætlaði bara að gefa konunni minni blómvönd,er maður ekki að standa sig, en ég keypti handa okkur lax sem var mjög góður. En við töluðum of mikið samann og þegar ég kvaddi hann og fór út í bíl þá fattaði ég það að ég gleymdi að snúa við til að kaupa blómvöndinn og það var svolítið mikið að gera svo að ég ákvað að koma við í 10-11 og kaupa einn flottan vönd, ekki segja henni frá því að ég hafi keypt hann í 10-11.
Nú liggjum við Hulda í flensu og eigum voða mikið bágt..
Kv Jón Ar.... í djúpum skí.....
24.2.2008
Minningar um frystihúsið
Það er svo margt hægt að rifja upp sem gerðist fyrir rúmum 20 árum, þá var nóg að gera á Skagaströnd það var unnið í frystihúsinu, rækjunni, skreiðinni, skelfisk og á tveimur stöðum var kaupfélagið með verslun og þar sem hann Jón Ingi var að brenna fiskafganganna og slippurinn Helgi, Gunnars, og Eddi Hallgríms og það var nóg að gera hjá þeim og svo voru 2 rafvirkjar Halli og Palli og Kalli með bílaverkstæðið og saumastofa, skipasmíðastöðin svo er kannski eitthvað meira sem ég man ekki eftir en nokkur af þessum fyrirtækjum eru enn að störfum. Hjá Hólanes voru nú ansi margir að vinna í heildinni var það um 100 manns sem var að vinna á þessum stöðum sem Hólanes átti og margt skemmtilegt sem gerðist meðan ég var að vinna þar Ég byrjaði að vinna þar þegar ég var 15 ára og var þar í um 4 ár. Maður þurfti að vinna sig upp ég byrjaði að þrífa kassa þá sem Palli í mýrinni lét frá sér þegar hann var búinn að losa úr þeim í lyftuna sem fór upp á aðra hæð og þar tóku þeir við þeim Kári, Lilli, og Kjartan og þeir flökuðu fiskinn og sendu hann inn í sal þar sem konurnar gerðu að þeim. Svo þegar þær voru búnar að setja þær í öskju þá komu Maggi, Gunni stef og Rúnar og tóku af borðunum og settu það í frysti og biðu í 2-3 tíma þá gátu þeir slegið úr tækjunum. Svo vann maður sig upp næsta verk sem ég komst í var að fara að vinna að flaka fiskinn með Kjartani og Lilla o.fl það var nú ekkert smá stuð að vinna þar það heyrðist vel í mönnum og þá sérstaklega honum Kára gamla það var nú ekkert smá fjör að heyra í honum. En svo voru fleiri þarna Bassi, Gummi í Ásholti og fleiri. En svo kom að því að maður komst í það sem maður var búinn að bíða eftir að komast í og það var frystitækin og þá voru gömlu tækin og það sem ég fékk að gera var að vera niðri í frystiklefa og taka á móti kössunum og raða þeim. Þeir voru stundum svo fyndnir að þeir létu tóman kassa niður en samt bundinn og þegar hann kom niður til mín þá tók maður fast á honum og það var eins og maður sveif með honum þegar maður tók á honum.
Frystihússinnu breytt og það var mikil breyting í gangi öllu var breytt á fyrstu hæð hjá Palla það var allt rifið niður og sett ný tæki sem Villi og Baddi sáu um hvort að þeir hafa ekki hannað það sjálfir mig minnir það. En á annarri hæð þá voru tækin öll rifin niður þar vorum viðað rífa niður Palli frá Brandaskarði Arnar og fl. Það voru margir hverjir sem voru að vinna í frystihúsinu að vinna við að breyta.
Svo þegar allt var klárt þá hófst vinnslan aftur og allt var snilldar upp gert. Ég fékk að fara fljótlega að byrja í tækjunum og það var hálfgerður heiður að fá að fara í tækin, það voru margir ágætis menn þar Árni Jón heitinn, Gunni, Maggi, Arnar, Rúnar Palli, Ingvi Sveinn og fl. Við vorum oft að keppast um hverjir voru fljótari að slá úr tækjunum og maður svitnaði vel við það.
En svo kom það nú fyrir að tækin biluðu og ammoníak fór um allt hús og það varð að tæma húsið en alltaf kom Pétur sem sá um vélarnar hlaupandi inn og ætlaði að fara að gera við en hann kom stundum ekki með öryggisgrímu svo að það þurfti að fara með hann til læknis. Og við þurftum að setja á okkur kút og slá úr tækjunum og það var nú ekki auðvelt að gera það en það kom nokkur sinnum fyrir að það lak úr tækjunum og þá fékk maður í magann . Það var alltaf gaman þegar eftirlitsmennirnir komu að ath, hvort við séum að gera þetta rétt þeir voru hressir karlar. Halli verkstjóri hann var og er finn karl og Geiri, Palli Jóns sem var eftirlitinu, þetta voru fínir karlar.
Svo voru árshátíðir á hverju ári það var farið bæjarferð til R.víkur og gist á hótel loftleiðum, fyrsta skiptið sem ég fór þá var farið á Broadway og ég ásamt fleirum vorum ekki komnir á aldur en það slapp. Svo var haldið árshátíð í Fellsborg og það var ekki sparað fyrir hjómsveit því Sálin kom og spilaði eitt skiptið.
21.2.2008
Í bítið með bolla!!!!!
Hei vots opp, Ég held að ég sé að verða eins og eldra fólkið vakna snemma á morgnana yfirleitt er ég kominn á fætur kl 06:00 ok sofnaður kl 10:00 á kvöldin fyrir framan sjónvarpið og þá er búinn að sofa í 8 tíma sem er fínn tími. En það er nú gott að vera einn frammi og drekka kaffi og rýna í blöðin og kíkja í tölvuna.
Það er nóg að gera í dag strax kl 8:00 þá verð ég að fara með tilboð á trésmíðaverkstæði og ath hvort þeir vilji það sem ég er að bjóða upp á. Það er ótrúlega mikið að gera á öllum verkstæðum í dag það er oft verið að bjóða mér vinnu ef ég læt það út úr mér að ég sé smiður, en ég held að ég fari nú ekki aftur í smíðina eða minnstakosti ekki í uppslátt það væri skemmtilegra að fara á trésmíðaverkstæði.
Þessi mynd af honum afa og hrútnum sem slapp er alveg snilld sá gamli þurfti að elta hann og náði honum og það er nú ekki auðvelt að ná þessum greyjum, mér skilst að Óli Benna hafi tekið þessa mynd og gefið afa hana.
Jæja nú er best að fara að vekja börn og konu og koma börnunum í skólann.
Kv Jón Arn......
17.2.2008
Hrútahlaup!!!
16.2.2008
Laugardagsmorgun með kaffibolla!! :-)
Sælt veri fólkið og velkomið á fætur, nú sit ég og er að borða morgunmat. Við vorum á þorrablóti í gær hjá tengdó og ég setti upp á meðan baðskáp með vaski, þá meina ég baðvask, en eftir 2 vikur þá er þorrablót í vinnunni og fyrir viku þá var þorrablót hjá Húnakornum og mamma bauð okkur á það blót, þannig þá held ég að verði búinn að fá nóg af blóti þetta árið. Ég er að velta fyrir mér hvort það sé enginn sem á myndir frá tíma frystihússins það var svo margt sem gerðist á þeim tíma það er nauðsynlegt að rifja þann tíma upp.
En við voruð látnir taka próf í vinnunni í gær, þeir sem eru búnir að vera minna en 2 ár, ég er búinna að vera 2 mán. þannig að mér fannst ekki réttlátt að ég tæki þetta próf ég er ekki búin að læra svo mikið á 2 mán. en ég fékk bara einu stigi minna en þeir svo að það reddaðist en einkunnin var nú ekki upp á marga fiska hún var upp á 4 fiska, en svo er mikið próf framundan svo að það er best að fara að lesa bókina
Nú er ég komin með kaffibolla, það munaði svo litlu að ég keyrði á í gær, ég var að fara inn á hringtorg og það var svell og billin hann hægði ekkert á sér þannig að ég varð að taka í handbremsuna og ég rétt slapp, maður er ekki búinn að gleyma það sem maður var að gera stundum á yngri árum.
En nú tími til kominn að tjútta besta að fara gera eitthvað skemmtilegt, Magnús hann vildi fá að sofa hjá Kormáki þeir eru svo miklir vinir og leika sér mikið samann þannig að það er hálf tómlegt þegar hann er ekki á staðnum þessi elska.
Sí jú leider ali geiter.
Kv. Jón Arn.......
13.2.2008
Rambo, he's the best!!!!!!
Rambo hann klikkar ekki, ég og Úlfar skruppum að sjá snillinginn, það vöru ansi margir drepnir á þessar mynd og það var ekki verið að spara rauða litin hann skaut vondu mennina í tætlur, það var hlegið í hvers skipti sem ein af vondu mönunum voru skotnir, og það kom eitt smá bros þegar myndin endaði þegar hann var komin aftur til USA. En ég er tilbúinn að sjá næstu mynd þegar hann verður kominn á elliheimili þá klikkar hann ekki. Það er gaman að þessar mynd og ég mæli með að þið farið á hana.
Kv. Jón Ar,,,
10.2.2008
Að blota þorra!!!!
Nú vorum við skötuhjúin og mamma (Ása) að blóta þorra með Húnvetningafélaginu og það var mjög gott að borða, það var margt um manninn og það var sagðir skemmtilegir brandara og farið með kvæði og það var gaman að sjá eldra fólkið dansa, maður var bara fyrir og gat ekki dansað eins og það gerði. Kannski að því að maður var nú ekki að drekka þá er maður nú ekki góður að dansa. En hljómsveiti hún spilaði nú ekki vel, þetta voru líka bara karlar sem gera þetta ekki á hverjum deigi. Það væri nú gaman að taka salinn á leigu og halda þarna skagga partí. Það er nú munur að Róbert og Helena geti passað hann Magnús ef við förum eitthvert. En við Hulda erum orðin svo gömul að við nennum ekki að vera lengi að djamma.
Kv Jón Ar...
9.2.2008
Laugardagsspjall með kaffibolla!!!!
Nú sitjum við Hulda og erum að skoða fréttir í tölvunni og erum að lesa um vatnselginn sem gekk um allt í gærkvöldi. Það er nú merkilegt hvað Ísland er furðulegt land veðrið breytist úr einu í annað fyrst er allt á kafi í snjó svo kemur rigning og svo kemur aftur snjór en svona er Ísland í dag.
Það er svo margt sem honum Magnúsi dettur í hug að spyrja um, hann spurði mömmu sín af hverju pabbi eigi svona marga gítara, þá sagði mamma hans að hann hafi verið í hljómsveit þegar hann var ungur, nú var hann gítarmaður sagði hann. Það er nú svo margt sem honum dettur í hug að spyrja um hann var að reina að lýsa fyrir mömmu sinni ananas hann mundi ekki hvað það hét og var að reina að lýsa hvernig hann lítur úr, hann sagði að það vori gult og það stingur, þá var hann að meina heilan ananas,og þá sagði hún hvort hann væri að meina ananas, já ég er að meina það. 
Nú er ég loksins að fara að flakka ein í vinnunni að reina að selja smiðum vörur er búinn að vara að flakka með sölumönnum og þeir að reina að kenna mér að selja. Það er nú svo fyndið að ég og Úlfar sem er smiður við erum búnir að vera að vinna saman í 15 ár á sama stað og þegar ég hætti sem smiður hjá GP þá fór ég að vinna á öðrum stað og nú getur verið að hann sé að fara að vinna á sama stað og ég.

Kv Jónar,, og nú hana!!!!!
3.2.2008
Laugardagsmorgun með kaffibolla nr. 3!! :-)
Jæja hvað segið þið í dag? Nú sitjum við Magnús og erum í sitthvorri tölvunni hann er orðinn svo klár að spila krakkaleiki að maður þarf ekki að hjálpa honum mikið.
En ég er oft að hugsa hvernig það var þegar maður var að vinna í frystihúsinu á Skagaströnd það var nú ofsalega gaman mikil stemming og það var heiður að fá að vinna í frystitækjunum með þeim Magga og Gunna Stef og öllum hinum. Það var nú alltaf gaman að ná í öskjurnar hjá konunum, alltaf gaman að fara til hennar Fjólu því þar gat maður alltaf fengið brjóstsykur hjá henni. En svo lenti maður oft í löndum af gamla Arnari eða á lyftara við að landa úr Örvari. Það var nú gaman að sjá þegar togararnir komu í land þá var hálf tómlegt í frystihúsinu því þá voru konurnar að ná í sína menn og bílaröðin beið eftir að skipið kom að bryggju. Það væri nú gaman ef eitthver á myndir frá þessum tíma þegar frystihúsið var uppá sitt besta að setja þær á netið svo maður geti rifjað upp lífið á þessum tíma. Ég er tilbúinn að taka þær og setja þær inná mína síðu ef eitthver á myndir. Þetta er tímabil sem maður gleymir nú ekki sí svona. Það kom nú fyrir að þegar maður var að vinna um helgar að maður mætti á laugardögum ekki í stuði við að vinna en svona var þetta bara. Endilega ef einhver á myndir að setja þær á netið.
Kv. JónAr.......
1.2.2008
Nú er kalt maður maður!!!!!!!!
Nú er frost á fróni frýs í æðum blóð kveður kulda ljóð Kári jötu móð, það er um 13 í mínus og ég var að koma inn fór í smá bíltúr og reyna að taka myndir í myrkri, það er nú ekki neitt auðvelt að framkvæma það almennilega en ég tók nokkrar myndir sem heppnuðust sæmilega en ég tók líka slatta sem tókst ekki. En maður er alltaf að læra á þessa vél og maður verður að vera þolinmóður eða bara óþolinmóður og arga á myndavélina og kenna henni um þetta allt saman.
En þetta minnti mig á þegar ég var að vinna í frystihúsinu og var að vinna í frystiklefanum í ískulda að raða á bretti eða þegar ég var að vinna á helvítis gaslyftaranum að landa upp úr togaranum og maður andaði að sér gasið, þá var hausinn á mér að springa en það var ekkert annað í boði hjá Hólanes. Nú er tíma kominn að skipta um baðinnréttingu, það vildi svo til að ég er með munangur og ég var bera á sárið og svo helti ég þessu bláa vökva á borðpötuna sem er úr eitthverju viðartegund og það sogaðist í viðinn og ég næ því ekki úr aftur og það er ekki nein smá blettur, en konan mín hún er nú ekkert leið yfir því hún er búin að vera suða í mér að fá nýja innréttingu og ég seigi bara seinna svo er það líka með okkur smiðina að við erum ekki neitt þeir duglegust sem nenna að gera eitthvað heima hjá sér, þannig að það er komið að því að við verðum að fara að skipa sko.
Og hana nú kv Jón Ar

