Blogg...
26.1.2008
Laugardagsmorgunn með kaffibolla!! :-)
Það snjóar núna sæmilega fólk ætti að geta farið á skíði . Kannski að skíðalyftan á Skagaströnd sé opin og skíðaáhugafólk geti farið að renna sér á fullu. En það er nú búið að vera leiðnilegt veður (ég þarf að hnerra.... gat það ekki) . Í dag ætla ég að hitta hann Ingimar Oddsson á kaffihúsi (nú ætla ég að fá mér kaffibolla,,,,,, er kominn með einn bolla.) Það er margt sem ég er að læra í nýju vinnunni minni, þetta er svo gott að vera einn á flakki og reyna að selja þessum smiðum eitthvað sem þeir þurfa að nota. Ég tel mig geta fullnægt þessum smiðum, þá meina ég með minni sölusnilld það er svo margt sem við smiðir viljum eiga í skúrnum hjá okkur, en svo er nú sumir sem vilja ekki fá okkur til sín, ég skil það ekki, því að við erum með dagatöl sem margir vilja fá, það er af hálf berum konum og svo erum við líka með hálf bera karla. En það er svo fyndið þegar maður kemur með dagatölin og það eru konur að vinna þá vilja sumar ekki hafa dagatöl en þegar við bjóðum þeim myndir að karlmönnum þá er það allt annað skiljanlegt,( þá meina ég fyrir þær, kaffibollin er búinn)
Svo er það þessi borgarstjórn hún ætti að skammast sín, eins og ég segi um ríkisstjórnina hún er eins og krakkar í leikskóla en borgarstjórnin hún er eins og krakka hjá dagmömmu krakkar sem geta ekki verið sammála útaf einhverju dóti, sama og þessir asnar í borgar og ríkisstjórn geta ekki verið sammála útaf neinu. Mér finnst þetta asnaleg og aumingjaleg vinnubrögð, og hana nú!!! 
Jæja nú er ég hættur er einn frami Magnús hann vildi sofa hjá henni ömmu sinni og Alexander guttinn hans Arnars er þar líka þeir eru miklir vinir þó að það séu nú nokkur ár á milli þeirra, en við Hulda notfærum okkur það nú ekki og förum ekki að djamma eða í bíó , en við vorum bara tvö í rúminu, úúú enn við sofnuðum bæði fram í stofu, kl. 04:00 vöknuðum við og fórum uppí rúm og héldum áfram að sofa
Kv JónAr.. og hana nú
24.1.2008
Hér býr tónlistarfólk!!!!!
Nú er litla stelpan mín að læra á píanó og er búin að vera í því í 4 mán. kennarinn hann er búinn að vera að hæla henni ofsaleg mikið. Hún byrjaði síðast haust og var fljót að læra hún var einu sinni í viku og svo núna eftir áramótin þá er hún tvisvar í viku. Hún er fljót að læra og dugleg að læra á nóturnar og fljót að læra laugin, það var eitthvað sem ég hafði ekki þolinmæði við að læra á nótur og gafst fljótlega upp á því hjá henni Steinuni Berndsen ég nennti ekki að læra nóturnar, en henni Huldu gekk vel að læra nóturnar.Þannig að hér er nú bara tónlistarfólk á þessu heimili. 
Eruð þið búin að ákveða hvert á að fara í sumarfrí? Á að skreppa erlendis eða var bara heima og skoða landið okkar? Við erum búinn að ákveða að vera heima. Róbert hann þarf að fara að vinna og safna sér pening fyrir framhaldsskóla því það er ekkert ódýrt að fara í skóla. Þannig að við tökum sumarbústað á leigu á góðum stað eða eitthvað svoleiðis.
Kv. JónAr
17.1.2008
Handbolti og aftur handbolti!!!!!!!
Kv Jónar
12.1.2008
Vinnufundur+matur, keila og bjór
Nú sit ég við tölvuna og drekk kaffi og er smá þunnur, það vildi svo til að það var fundur hjá vinnunni minni( Wurth) og það var verið að skoða planið fyrir næsta ár.
Og við byrjuðum á að borða vondan mat á hótel Loftleiðum og svo átti að fara í einn fundarsal og rætt málin, en hann var ekki með nóg af sætum svo að við þurftum að fara í annan sal, en það vildi svo til að þar voru tengi biluð fyrir tölvuna svo að við fórum aftur í hinn salinn sem við byrjuðum á . Eftir að því lauk þá var farið í sund og heitu pottanna og ræt málin. Svo var boðið í mat og keilu og eitthvað að drekka. Við vorum með 6 brautir og það var mikil stemming allt í boði Wurth. can not be better. Og það var mikið arkað og gargað og gefið 5. svo voru gefin verlaun fyrir allt, og sá sem skaut mest útaf hann fékk verlaun. En ég fékk engin verlaun, eina sem ég fékk var hausverk, en það voru menn sem höfðu aldrei farið í keilu og þeim gekk bara mjög vel. Svo eftir það var farið að djamma en ég fór bara heim með hausverk og vaknaði með hausverk
Kv Jón Ar
6.1.2008
Bakverkur!!!!!!!
Jæja nú sit ég og er að drepast í bakinu, það er eins og það hafi verið farið með beitan hníf eftir mjóhryggnum þegar ég beygði mig aðeins, mér finnst að fólk eigi að vorkenna mér, eða pínu!!!!!. Annars er allt gott að frétta ég og Maggi sitjum við borðir og erum í tölvunni., hann er orðin svo klár að finna krakkaleikinna að maður þarf ekki að hjálpa honum. En í þessum skrifuðu orðum þá lét hann tölvuna heyra það "þetta er bilað "og lét hana heyra það. En svo fann hann það sem hann var aða leita að og sagði að þetta væri allt í lagi. Hann er smá skap í honum en það er nú fljótt að fara úr honum hann er ljúfur þessi elska. Það er svo skrítið hvað er lítið af snjó. Ég held að það sé bara búið að koma 2 sinnum sæmilegur snjór og hann var fljótur að fara aftur. Þetta er nú ekki gott fyrir skíðamennina. En nú kallaði Magnús á mig aftur og bað mig að setja Tomma og Jenna leikinn og ég reyndi að pikka inn nafn er mér tókst það ekki, þá sagði Magnús "þú átt að skrifa Tommi og Jenni lekó leikur þá á það að koma", en mér tókst það ekki svo að hann sagði" ég fer þá að horfa á sjónvarpið" og það með smá tónn.
Jæja, ég byrja oft á að skrifa jæja, ég veit ekki af hverju!!! En nú er komið nóg í bili.
Kv JónAr
1.1.2008
NÝTT ÁR
Jæja nú er komið nýtt ár, ég sit hér hálf ósofinn fórum seint að sofa, það fylgir þessum tíma. Það var mikið skotið hér í borginni þó svo að veðrið hafi ekki boðið uppá það. Áramótaskaupið það var nú ekki skemmtilegt og það er nú ekki í fyrsta skipti sem það lukkast ekki. En nú verður maður að vera bjartsýn með nýtt ár og að allt blessist, sérstaklega með nýju vinnuna.
En það var mikið fjör á þessu heimili á gamlársdag, fyrir utan það að Magnús Jón var lasin og hann sofnaði snemma. Óli og fj. Elín tengdó og Vignir komu og Hafþór, Sigþrúður Elli Gunni komu í fyrsta skipti í bæinn á áramótunum, Súsí átti 44 ára afmæli og Hafþór og Elli fríkuðu út í flugeldasjóvinu það er svo gott að vera úti á svölum sem eru yfirbyggðar og horfa á 5000 þús. karlana springa. Jæja best að fara að fá sér kaffi svo maður vakni almennilega og fari að undirbúa næstu fj.veislu sem kemur mín megin og það sterkasta sem boðið er uppá er kaffi
kv Jónar
